Fara í innihald

DOI-númer

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Merki DOI.

DOI-númer (stendur fyrir digital object identifier „auðkenni stafræns viðfangs“) eru auðkenni fyrir stafræn viðföng sem eru víða notuð til þess að auðkenna fræðigreinar og opinber gagnasöfn. Auðkennið er staðlað af Alþjóðlegu staðlastofnuninni.

DOI er uppflettanlegt og bendir á einhverskonar upplýsingar um viðfangið. Þetta er gert með því að binda auðkennið við lýsigögn um efnið, eins og netslóð, sem gefur til kynna hvar má finna viðfangið. Ef vefslóðin breytist er gagnagrunnurinn uppfærður og auðkennið nær þannig enn að vísa á rétt viðfang. Þar sem hægt er að nýta DOI beint er það öðruvísi en önnur auðkenni eins og ISBN eða ISRC, sem eru eingöngu til þess að hafa einstakt auðkenni á hlutnum. Sem dæmi um DOI-númer má taka „10.1000/182“, sem vísar á handbókina um DOI-númer.

DOI-númer er útfærsla á handfangakerfinu, kerfi sem aðrar stofnanir geta einnig nýtt sér. Skemman, rafrænt varðveislusafn háskólasamfélagsins á Íslandi, nýtir sér handfangakerfið og virkar það á sama hátt.

DOI-kerfið var kynnt til sögunnar árið 2000. Árið 2025 höfðu yfir 390 milljón kennimerki verið gefin út.[1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „What is a DOI?“. Sótt 6 febrúar 2025.